Samstarf með Lettlandi
Lettar heimsækja Ísland
Örtækni er í samstarfi við samfélag fatlaðra í Ludza í Lettlandi um vinnustaði fyrir fatlaða. Ludza er að koma á fót slíkum vinnustöðum og hafa horft til Íslands um samstarf og vilja læra hvernig við gerum hlutina hér á Íslandi. Einnig gætum við lært eitthvað nýtt af þeim.
Í júlí fengum við heimsókn frá Ludza í Lettlandi, 7 manns komu og var það hluti af verkefninu. Dvöldu þau á Íslandi í 5 daga. Á þeim tíma skoðuðu þau nokkra vinnustaði fatlaðra. Þau heimsóttu Örtækni, Örva, Múlalund, Ás vinnustofu og Sólheima í Grímsnesi. Á öllum þessum stöðum fengu þau góða innsýn í hvað var verið að vinna á hverjum stað og hvernig rekstrinum væri háttað. Þau höfðu mikinn áhuga á að kynna sér hvernig við fjármögnuðum vinnustaðina og samskipti okkar við yfirvöld.
Haldin var ráðstefna með fulltrúum frá Öryrkjabandalaginu, Vinnumálastofnun, Hlutverki, Örtækni, Múlalundi, Ás vinnustofu og gestunum frá Lettlandi. Lettarnir sögðu okkur frá því hvernig málum væri háttað hjá þeim. Þorbera hjá ÖBÍ sagði frá baráttunni í gegnum árin. Linda og Bjarni hjá Vinnumálastofnun töluðu um "Atvinnu með stuðningi" og samning Vinnumálastofnunar við vinnustaði fatlaðra. Rætt var um það hvernig við gerum hlutina á Íslandi og hvað gæti reynst þeim vel. Var umræðan mjög gagnleg og góð.
EES löndin, þ.e. Ísland, Noregur og Lichtenstein, ásamt Lettlandi og sveitarfélaginu Ludza kosta verkefnið, sem heitir "Work is Life".
Fulltrúar Örtækni og Hlutverks fara til Lettlands

Eins og segir að ofan er Örtækni í samvinnuverkefni við samfélag fatlaðra í Ludza í Lettlandi. Verkefnið gengur út á það að aðstoða þá við að kynna málefni fatlaðra og þá sérstaklega í sambandi við atvinnumál fatlaðra. Þá langar að setja á stofn vinnustaði fyrir fatlaða, eins og við erum með og einnig að hvetja atvinnurekendur til að ráða fatlaða í vinnu.



Að þessu loknu var skipt upp í tvo umræðuhópa sem fjölluðu annarsvegar um hvað er jákvætt við félagsleg úrræði fyrir fatlaða og hinn hópurinn ræddi um hvað er neikvætt við það. Síðan kynntu hóparnir niðurstöðurnar og rætt var um þær á opinn og líflegan hátt. Í lokin var svo samþykkt ályktun sem var send til yfirvalda.










Verkefnið er fjármagnað af Íslandi, Lichtenstein, Noregi, Lettlandi og sveitarfélaginu Ludza