Punktaletursskjáir
BAUM punktaletursskjáir
SuperVario punktaletursskjáir sem setja nýjan standard í stærðum, þyngd, sveigjanleika og tengimöguleikum.
SuperVario 64 and 80

SuperVario 64 og 80 eru hannaðir fyrir atvinnumenn og til einkanotkunar.
SuperVario 32 og 40
Þetta er nýi 40 sellu punktaletursskjárinn, sem er framleiddur aðallega fyrir ferðatölvur og lestrarvélar. Hann er 40% minni en fyrirrennari hans, sem var þó sá minnsti á markaðnum á sínum tíma og var það í 6 ár.
PocketVario
Er lítill punktaletursskjár með 24 sellum. Þetta er ódýr valkostur fyrir einka notendur og er raunverulega hægt að setja í vasann.
Báðir punktaletursskjáirnir eru með alhliða tengimöguleika:
- Blátönn - nútíma þráðlaus tenging við tövlu
- USB - stöðluð kapal tenging
- Seríal - stöðluð tengin fyrir eldri DOS tölvur
VARIO punktaletursskjáirnir hafa alltaf staðið upp úr vegna óviðjafnanlega langrar endingar á rafhlöðum.
Rafhlöðuending með blátanna tenginu er um 25 tímar.
Rafhlöðuending með USB eða seríal tenginu er um 100 tímar.
Til viðbótar eru nýju Vario skjáirnir hlaðnir með USB tenginunni: Punktaletursskjárinn er aðeins hlaðinn þegar fartölvan þín er tengd við rafmagn. Þegar fartölvan þín er á rafhlöðum, skiptir Vario sjálfkrafa líka á rafhlöður. Þannig að endingartími rafhlaðanna í fartölvunni mun ekki verða styttur enn frekar.
Öflugur kassi Punktaletursskjánna er gerður úr áli að ofan, en neðri hlutinn er úr plasti. Þessi aðferð er einig notuð í myndavélum og reynist mjög vel. Þetta gerir það að verkum að hægt er að gera lögulegt og sterkt tæki.
Þessir nýju punktaletursskjáir, SuperVario og PocketVario eru fulltrúar nýrrar kynslóðar í hönnun á ferðatækjum fyrir blinda notendur. Þeir skara framúr vegna nýjustu tækni sem hefur sannað sig vegna einfaldleika í notkun og sérlega hagstæðs verðs miðað við hvað er hægt að gera með tækjunum.
Stærðir:
Breidd (mm) Hæð (mm) Dýpt (mm) Þyngd (g)
PocketVario 208 20,5 76 380
SuperVario32 260 20,5 76 480
SuperVario40 310 20,5 76 880
SuperVario64 464 20,5 76 880
SuperVario80 566 21,5 77 1070
