Síma skjálestur og stækkun

Mobil speak talforrit fyrir farsíma
Til að halda blindum og sjónskertum með í nýjustu tækninýjungum í GSM símatækninni hefur Code Factory gefið út Mobile Speak útgáfu 3,0 sem virkar í flestum símum með Symbian seríu 60, 3. útgáfu. Þessi útgáfa gefur Code Factory forskot á samkeppnisaðilana í fjölda síma sem forritið virkar á, þar sem það virkar á flesta Symbian farsíma, Windows Mobile, SmartPhones og Vasatölvur.
Í mörg ár hefur Mobile Speak verið mikils metið sem skjálestrarforrit og vel þekkt fyrir mikil afköst, auðvelda notkunnareginleika og stillingar, auk samkeppnishæfs verðs. Með alþjóðlega viðurkenndan og verlaunaðan upplestrarhugbúnað eins og Acapela, Fonix og Loquendo auðfáanlegt í u.þ.b. 20 tungumálum, Dreifingaraðlar jafnt sem notendur halda áfram að líta á Mobile speak sem besta kostinn í skjálestrarforritum í farsímum.
Mobile Speak útgáfa 3,0 bíður uppá spennandi nýja kosti:
-
Stuðningur fyrir seríu 60, 3. útgáfu af nýjustu kynslóð farsíma með Symbian 9.x stýrikerfinu.
-
Aðgangur að innbyggðum MP3 spilurum á seríu 60, 3. útgáfu á farsímum.
-
Endurbættur og sjálfstæðari grunnhugbúnaður (sérstaklega á
nýrri farsímum). -
Nýr lyklaborðs hjálparhamur sem gefur notendum kost á að læra stýrihnappastillingar Mobile Speak og lyklaborðsuppsetningu farsímans án aðstoðar.
-
Möguleiki á að slökkva eða kveikja á upplestri leyninúmera.
* Endurbættur og stöðugur stuðningur við blindraletur. -
Stuðning fyrir fleiri blindraleturstæki frá Baum, Optelec og HumanWare.
Eins og fyrri útgáfur af Symbian seríu 60, Mobile Speak útgáfa 3,0 gefur notendum kost á að:
-
Hringja og taka á móti símtölum.
-
Skrifa og lesa SMS, MMS og tölvupósts skilaboð.
-
Vafra um internetið notandi þjónustuhugbúnað.
-
Sjá um símtalsskráningu og símaskrá farsímans.
-
Nota dagatal og áminningarlista.
-
Stilla klukku og vekjara.
-
Breyta útlitsham og stillingum farsímans.
-
Að nota aðra möguleika símans eins og reiknivél, talnabreita, minnismiða og skráar umsjón.
-
Nota þriðja aðla hugbúnað fyrir Symbian seríu 60, 3. útgáfu.
-
Tengja við tölvur, farsíma og önnur tæki.
Forstjóri CodeFactory Eduard Sánchez lét hafa þetta eftir sér: „Við trúum að skuldbinding Code Factory við að aðstoða blinda og sjónskerta einstaklinga með afurðum okkar verði ekki takmörkuð við að þróa öflug og kraftmikinn skjálestrar- og skjástækkunarhugbúnað fyrir farsíma sem eru á almenningsmarkaði, en líka að halda áfram að veita þeim sem bestan aðgang tæknilausna eftir því sem fleiri tæki verða aðgengileg á meirihluta markaðarsins.“
Margar tegundir farsíma eru núna aðgengilegar með því að nota Mobile Speak, 3. útgáfu. Þeir Nokia símar sem hægt er að setja MobileSpeak upp á eru: | Nokia 3230 | Nokia 3250 | Nokia 5320 | Nokia 5500 Sport | Nokia 5630 | Nokia 5700 Xpress Music | Nokia 6110 Navigator | Nokia 6120 Classic | Nokia 6121 Classic | Nokia 6124 | Nokia 6210 | Nokia 6220 | Nokia 6260 | Nokia 6290 | Nokia 6600 (NOT the 6600 Fold) | Nokia 6620 | Nokia 6630 | Nokia 6650 | Nokia 6670 | Nokia 6680 | Nokia 6681 | Nokia 6682 | Nokia 7610 (NOT the 7610 Supernova) | Nokia E50 | Nokia E51 | Nokia E60 | Nokia E61 | Nokia E61i | Nokia E62 | Nokia E63 | Nokia E65 | Nokia E66 | Nokia E70 | Nokia E71 | Nokia E75 | Nokia E90 Communicator | Nokia N70 | Nokia N71 | Nokia N72 | Nokia N73 | Nokia N75 | Nokia N76 | Nokia N77 | Nokia N78 | Nokia N79 | Nokia N80 | Nokia N81 | Nokia N82 | Nokia N85 | Nokia N90 | Nokia N91 | Nokia N92 | Nokia N93 | Nokia N93i | Nokia N95 | Nokia N95 8GB | Nokia N96.
Ný hljóðkynning á ensku og spænsku mun verða möguleg á vefsíðu framleiðanda, www.codefactory.es. Hljóðkynningin mun útskýra möguleika vörunnar okkar, auk útskýringu á því hvernig á að nota Mobile Speak frá því að setja upp forritið að því að hlusta á innri stillingar til að geta notið til fulls alla möguleika Symbian Smartphone farsímanns. Þetta er aðeins byrjunin á því hvað viðskiðtavinir Code Factory geta búist við í áframhaldandi sókn í að skapa framúrskarandi tæknivörur.
Forritið kostar kr. 41.900 með uppsetningu.
Mobile Magnifier stækkunarforrit fyrir farsíma
Code Factory er með frábærar fréttir fyrir notendur Mobile Magnifier fyrir Symbian seríu 60, 3. útgáfu farsíma. Nýja og endurbætta útgáfan af Mobile Magnifier er með heilskjásstækkun og er það fyrsta í forritið í þessum flokki með letursléttun, sérstillingar bendils og stöðu flýtivísa.
Í upphafi mun Mobile Magnifier útgáfa 3,0 mun einungis styðja Symbian 8 farsíma sem eru Nokia 6630, 6681, 6682, N70 og N90. En við munum koma með uppfærslu fyrir aðrar útgáfur af Symbian farsímum fljótlega, sem verður með enn fleiri kostum.
Enn og aftur hjálpar Code Factory sjónskertum einstaklingum að vera sjálfstæðir í daglegu lífi. Nýi Mobile Magnifier stækkar og gerir auðveldara að sjá alla hluti á skjá farsímans, skynjar sjálfvirkt og stækkar svæðið sem þú ert að skoða um leið og notandinn vafrar um skjáinn með þá stækkun sem hentar. Sveigjanleiki forritsins bíður uppá mismunandi kosti til að breyta skjáútlitinu (litum, bendli og leturtegund) til að henta þeirra þörfum.
„Code Factory hefur alltaf verið stolt af því að sinna beiðnum notenda“ segir Eduard Sánchez forstjóri „svo endurbætur í útgáfu 3, af okkar Symbian Magnifier, er okkar leið til að tryggja sjónskertum viðskiptavinum okkar að við séum staðráðnir í að veita þeim sem bestan aðgang að farsímanum þeirra og að vera fyrstir til að bjóða uppá nýja kosti og möguleika, þökk sé þeirra áframhaldandi stuðningi.
Mobile Magnifier útgáfa 3.0 bíður uppá:
-
Er sjálfgefið í heilskjástækkun.
-
Bíður uppá kostinn að skipta í eldri mögnunar möguleika eða (split view) stillingu þar sem efri helmingur skjás er stækkaður en neðri helmingur í upprunalegri stærð.
-
Bíður uppá þriðju skjástillinguna þar sem skjátexti er magnaður upp í miðju skjás en efri og neðri partar eru í eðlilegri stærð, en hægt er að breyta stærðinn á þeim hluta einnig.
-
Gerir auðveldara að lesa texta og myndir með leturssléttun (word smoothing) til að skjáinnihaldið virðist minna bjagað.
-
Hefur stillingarkosti til að breyta textastærð, textabendils stærð og lit.
-
Er með stækkaða flýtivísa fyrir mikilvægustu upplýsingarnar eins og stöðu rafhlöðu, signal styrk, dagsetningu, tíma og fleira.
-
Er algerlega samhæft Mobile speak og þarf ekki að vera uppsett sem sér forrit í símanum.
Allir nýrri kostir koma sem viðbót á eldri möguleika:
-
Mögnunarmöguleikar frá 1,5 sinnum til 16 sinnum mögnun.
-
Sjálfvirkt stækkun til að stilla mögnun eftir efni á skjá.
-
Sjálfvirk tilfærsla með stillanlegum hröðum.
-
Útlínum á mögnuðu svæði með stillanlegri breidd og lit.
-
Sjö litaforstillingar til að mæta kröfum notanda með takmarkaða sjón.
-
Samhæfð mögnun og tal þegar notað með Mobile Speak.
Code Factory heldur áfram við að gera Mobile Magnifier að stöðluðu hjálpatæki í farsímum, sem og að koma með forrit sem er traust og auðvelt í notkun á skynsamlegu verði, fyrir einstaklinga sem eiga í erfiðleikum með sjón.
Forritið kostar kr. 41.900 með uppsetningu.
