Hugbúnaður fyrir lesblinda
EasyTutor fyrir lesblinda
Hvað er EasyTutor?
Fullkomin lausn fyrir fólk með lesblindu og þá sem eiga í erfiðleikum með að lesa, skrifa og stafa orð. Tölvunotendur geta skrifað, lesið, skoðað og yfirfarið texta með röddum sem eru innbyggðar í Dolphin Tutor hugbúnaðinn. Tvær raddir fylgja með, íslenska og enska.
Fyrir hvern er EasyTutor?
EasyTutor er fyrir lesblinda tölvunotendur. Sérstaklega gagnast EasyTutor námsmönnum á öllum skólastigum, fólki á almennum vinnumarkaði, í þjálfun og heima.
Helstu kostir:
Les upphátt og yfirstrikar texta í Word skjölum, vefsíðum og öðrum skjölum sem hjálpa til við lestur.- Yfirstrikar texta og les orð upphátt um leið og þú skrifar og býr þannig til tengingu milli talaðs orðs og skrifaðs orðs.
Kemur með tillögur að orðum um leið og þú skrifar og útskýrir hvað orðin þýða í hjálpinni til að auka leskilning og orðaforða (er ekki til á íslensku ennþá).- Innbyggður gæða talgervill svo ekki þarf að að nota annað forrit.
- Hægt að vista texta sem hljóðfæla svo þú getir hlustað á textann hvar og hvenær sem þú vilt eða leyft öðrum að hlusta líka.
- Auðvelt að skilja og nota, ekki þarf mikla kennslu til að nota forritið.
Þekkt vinnuumhverfi. EasyTutor virkar eins og stika í mörgum tölvuforritum, t.d. Microsoft Word, Excel og Internet Explorer.- Tal frá talgervli sem hljómar eðlilega og hefur réttan framburð.
- Þú getur aðlagað tólastikuna að þínum þörfum og ráðið stærð íkonanna, til að auðvelda notkun tóla.
- Þú ræður lestrarhraðanum, getur aðlagað hann að þínum þörfum.

Þú ræður hvernig texti birtist, getur breytt erfiðum litum, stafagerð, bili á milli stafa og lína, allt að þínum þörfum. Þetta eykur læsileikann.
Innheldur orðabók sem gefur kost á mörgum orðum og skýringum um leið og þú skrifar (ekki ennþá til fyrir íslensku).- EasyTutor brýtur upp orð í atkvæði sem hjálpar við lestur á nýjum orðum.
Yfirgrips mikið kerfi (Homophone) fyrir orð sem eru borin fram eins, en eru með ólíkar merkingar. Þetta hjálpar til við að velja rétt orð og eykur orðaforða (ekki ennþá til á íslensku).
Skanna og breyta rituðu skjali eða PDF skjali í texta og EasyTutor les það fyrir þig.- Láttu músina benda á valmynd til að heyra hvaða aðgerð hún hefur.
Nokkur dæmi um skjámyndir í EasyTutor:
Tutor valstika.
´

Það er auðvelt að opna Tutor í Windows start valmyndinni.

Speach flipinn (tal) í Settings glugganum gerir þér kleift að að velja, gerð, hraða og styrk raddarinnar og þú getur líka vistað hljóðfæla.

Wiew flipinn (skoða) í Settings glugganum gerir þér kleift að aðlaga íkonin í stikunni að þínum þörfum.

Prediction flipinn (fyrirsjáanlegi) í Settings glugganum gerir þér kleift að stilla hvernig spáð er um hvaða orð þú ert að skrifa.

Check Words & Keyboard flipinn (skoða orð og lyklaborð) í Settings glugganum gerir þér kleift að stilla hvernig Tutor hjálpar með með orðin.

Þegar þú ert að skrifa texta, getur Tutor spáð fyrir um orðin sem þú villt nota. Þessi orð eru valin frá innbyggðum lista.

Tutor leyfir notendum að stilla allt vinnuumhverfið með því að aðlaga texta og bakgrunns liti.

Tutor er einnig hægt að nota í Internet Explorer. Þetta sýnishorn sýnir Tutor lesa upphátt texta á vefsíðu.

Scan flipinn (skanna) í Settings glugganum gerir þér kleift að stilla fyrir skönnun á skjali.

Tutor hjálpar þegar orð sem eru eins skrifuð, en hafa ólíka merkingu, eru ekki borin fram á sama hátt. Tutor opnar glugga og kemur með uppástungu um orð og þýðingu.

Tutor stikuna er hægt að nota í Excel þar sem linkur í reiknivél er mjög gagnlegur.
